fbpx

Konukvöld Smáralindar – tilboðin og óskalistinn minn

Á ÓskalistanumÉg Mæli MeðLífið MittmakeupMakeup ArtistNýjungar í SnyrtivöruheiminumSnyrtivörur

Ég dýrka þegar Smáralind heldur Konukvöldin sín í Smáralind. Síðustu fjögur ár hef ég verið að vinna á nánast hverju einasta kvöldi og ég hef alltaf skemmt mér konunglega. Mér datt í hug að setja saman smá færslu með dagskránni minni fyrir kvöldið, tilboðunum sem verða fyrir snyrtivörufíkla eins og mig og setja loks saman smá óskalista af vörum sem verða á góðu verði í dag og ég mæli með.

Fyrst að því hvar ég verð og hvað ég ætla nú að gera af mér þetta konukvöld. Ég verð fyrir framan Lyfju í Smáralind og mun þar kenna gestum og gangandi öll mín bestu leyndarmál – eða best of Leyndarmál Makeup Artistans. Sniðug ráð og tips um hvernig þið getið notað förðunarvörurnar ykkar, látið þær endast, farið vel með þær og auðvitað nokkur ráð um hvernig þið fullkomnið áferð húðarinnar. Ég verð með vörur frá L’Oreal og að sjálfsögðu Real Techniques. Auk þess mun ég í samstarfi við Ása Már stílista og Hermann á Modus Hárstofu í Smáralind sjá um að sýna heitustu trendin í stíliseringu, hári og förðun á nokkrum fyrirsæturm. Ási Már mun velja fatnað frá minni uppáhalds VILA og Oroblu til að setja saman flott dress.

Endilega kíkið á mig í smá ráðgjöf og nýtið ykkur frábær tilboð sem ég tel upp hér fyrir neðan…

63082_10200433764320955_1445502410_nFyrst þá hef ég heyrt slúður um það að það verði Tax Free af snyrtivörum í Hagkaupum sem þýðir um 20% afsláttur af öllum snyrtivörum. Í Debenhams eru Megadagar sem hefjast í dag og enda á sunnudaginn og þar verður 20% afsláttur af öllum snyrtivörum – fram á sunnudag svo ef þið komist ekki í dag þá hafið þið smá tíma til að næla ykkur í nýjar vörur.

Það eru líka frábær tilboð inní Lyfju þar sem ég verð. 20% afsláttur af L’Oreal og Real Techniques förðunarburstunum og að sjálfsögðu fólk á staðnum til að hjálpa ykkur við að velja réttar vörur. Það verður held ég líka 20 % afsláttur af Maybelline en ég er þó ekki alveg viss en alla vega er þá afsláttur í Hagkaupum af þeim vörum – þar verða líka sérstök tilboð á Rocket maskaranum og Better Skin farðanum. En besta tilboðið er klárlega það að Miss Manga maskarinn er á 50% afslætti sem þýðir að þið getið nælt ykkur í nýjan maskara á frábæru verði eða tvo maskara á verði eins.

Í Debenhams verður líka 30% afsláttur af uppáhalds Yves Saint Laurent vörunum hennar Cöru Delevingne í tilefni af því að fyrirsætan var stödd hér á landi um daginn. Cara er andlit snyrtivörumerkisins og hennar uppáhalds vörur eru Touche Eclat (gullpenninn) og Babydoll maskarinn!

Inní Make Up Store verður kynning á Deluxe línunni sem er vorlína verslunarinnar sem ég sýndi einmitt HÉR. Í búðinni verður 20% afsláttur af vörum, kaupaukar og góð tilboð. Svo verður sýnikennsla með vörum úr Deluxe línunni um níu leitið inní versluninni.

Þetta er svona það helsta af tilboðunum sem ég veit af, ég kem með update ef ég heyri eitthvað nýtt. En mig langaði að setja saman smá óskalista frá mér sem inniheldur vörur sem ég myndi næla mér í á þessu skemmtilega kvöldi :)

2014ss_makeup_pr_photo_ex21Öll vorlínan frá Shiseido má koma heim með mér takk fyrir, ég er ástfangin af nýju hyljara ljómapennunum, fallegu kremaugnskuggarnir í þessum björtu litum og andlitspúðrin eru svo girnileg:)12351912095_5fb2572ee9_bÉg hef ekki enn eignast marmaraaugnskuggana nýju frá Make Up Store en þeir hafa lengi verið á óskalistanum mínum og mögulega koma þeir heim með mér úr Smáralindinni í kvöld :)IMG_5448_edits2Nýju Color Show Crystallize naglalökkin frá Maybelline mæta í verslanir í Smáralind á morgun. Ef þið kannist við Liquid Sand frá OPI þá má segja að þetta séu sams konar lökk. Litirnir þrír sem eru hér fyrir ofan minna mig á Liquid Sand lökkin úr hátíðarlínu OPI frá síðasta ári en auk þeirra eru þrír aðrir litir. Maybelline-Better-Skin-1Nýji Better Skin farðinn frá Maybelline er æði! Hann er léttur og þæginlegur, það er auðvelt að vinna með hann, hann er ilmefnalaus og skilar húðinni fallegri til baka eins og nafnið gefur til kynna. Innan skamms fáið þið smá videoumfjöllun um farðann og hvað hann gerir. Hann verður á sérstöku tilboði í Hagkaup Smáralind í kvöld.YSL-Flower-Crush-Makeup-Collection-for-Spring-2014-Pivoine-Crush-PaletteÉg þarf nauðsynlega að eignast YSL vorpallettuna hún er æðisleg – þetta eru fullkomnir litir fyrir brúnu augun mín og ég mögulega splæsi í þessa annað kvöld :)embedded_Karl_Lagerfeld_fragrances_2014_for_him_and_herNýju Karl Lagerfeld ilmirnir ættu að vera á tékklistra allra tískuáhangenda. Þeir eru æðislegir í alla staði, mjög ferskir og nútímalegir. Fyrir helgi fékk ég smá kynningu á ilmunum og ég ætla að deila með ykkur öllu því helsta um þá á morgun. dolce-dolce-gabbana-fragranceSumarilmurinn minn í ár er nýji Dolce ilmurinn frá Dolce & Gabbana – þetta er sumar í flösku! Ég var að fá sýnishorn af honum í gær og ég er ástfangin, yndislegur blómailmur sem er fullkominn fyrir mig. Mér finnst tappinn alveg æðislegur en hann er innblásinn af marsipan blómi.Volume_Million_Lashes_So_Couture_Jpg300ppiAdobe1998Þrátt fyrir að það verði maskari frá L’Oreal á 50% afslætti þá er nýji So Couture maskarinn frá sama merki á mínum óskalista. Hreinlega þar sem þetta er uppáhalds maskarinn minn – loksins hef ég fundið maskara sem gerir allt sem ég vil að hann geri fyrir mín augnhár. Leitin að hinum fullkomna maskara fyrir mig hefur staðið yfir í 10 ár en hann er fundinn núna. Ég var að taka umm video fyrir þennan maskara í gær og ég hlakka til að sýna ykkur hann.smashboxbirthdaynails 031Ef ykkur langar í Full Exposure pallettuna frá Smashbox þá er komið tækfæri til að eignast þessa gersemi á alveg fáránlegu verði. 14 augnskuggar á 20% afslætti – sirka 7000 kr, gjöf en ekki gjald!

estee-lauder-sumptuous-infinite-daring-length-volume-mascaraNýji maskarinn frá Estée Lauder er víst æðislegur. Ég er komin með mitt sýnishorn en ég hef ekki enn haft tækifæri til að prófa hann. En eins og þið sjáið þá er burstinn ansi sérkennilegur en hann bæði eykur umfang augnháranna og lengir þau.OPI-Sheer-Tints-Collection-1024x698Nýju Sheer Tints frá OPI eru komnir í verslanir. Þetta eru örþunnir og frekar gegnsæjir litir sem er hægt að nota eina og sér eða yfir aðra liti til að breyta þeim. Þessi eru t.d. flott yfir hvíta eða ljósa liti til að búa til pastel lituð naglalökk!

New Marc Jacobs Daisy Editions for Spring 2014Marc Jaobs sumarilmirnir eru must have fyrir árstíðina framundan. Eau so Fresh ilmurinn er minn uppáhalds af þessum tveim sem komu en þetta eru ekki bara ilmvötn heldur eru þetta líka fallegir skrautmunir fyrir heimilið, baðherbergið eða snyrtiborðið :)
bourjois_cc_1Mig dauðlangar að prófa nýju CC vörurnar frá Bourjois – þetta er efst á óskalistanum mínum fyrir kvöldið, bæði kremið sjálft og hyljarinn.lp_nailsPastel naglalökkin frá L’Oreal verða komin í Smáralind á morgun ég er komin með sýnishorn og ég er mjög hrifin af litunum sem eru mjög þéttir og fallegir. Þau gefa alveg heilan lit ég er einmitt með þetta fjólubláa á nöglunum í dag.8kremÉg að mæla með Eight Hour næturkreminu frá Elizabeth Arden, ég er alveg á því að ég sofi betur á nóttunni þegar ég hef borið kremið á mig en það inniheldur Lavander ilm sem hefur róandi áhrif á hugann, meir HÉR.

1294746870i_-_open_light_product_main_260x448Eye Brightener er uppáhalds varan mín frá New CID. Ég reyndar nota hana ekki í kringum augun, alla vega ekki svona fyrst og fremst. Ég nota hyljarann og eyelinerinn til að fullkomna varalitinn minn þegar ég er með áberandi lit á vörunum. Þá ramma ég þær inn og fullkomna mótun þeirra með þessari snilldarvöru:)silica-mud-mask_gallery2Að lokum hvet ég ykkur til að kaupa snyrtivörur frá Bláa Lóninu – þær eru lausar við öll aukaefni svo þær henta öllum húðtýpum. Hreinsivörurnar eru í miklu uppáhaldi hjá mér og Mud maskinn líka. Æðislegar vörur en það besta við þær er í hversu miklu magni þær fást í. Umbúðirnar frá Bláa Lóninu eru almennt stærri en frá öðrum merkjum!

Svo svona smá p.s. – þetta er fullkomið tækifæri til að næla sér í nýju Real Techniques burstana á fáránlegu verði! Ég mæli sérstaklega með Miracle Complexion Sponge sem verður á fáránlegu verði með afslættinum ;)

Þetta eru svona nokkrar hugmyndir frá mér og ég vona að ég sjái sem flesta í Smáralindinni í kvöld – ég verð fyrir framan Lyfju!

EH

Bjútíklúbburinn: lesandi prófar brúnkukrem

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Aldís

    20. March 2014

    OMG ** verð að mæta !!

  2. Hrund

    20. March 2014

    Spennandi!!
    Gat þó ekki annað en rekið augun í úrið sem þú ert með ;) Frá hvada merki er það?

  3. Harpa Dögg

    20. March 2014

    Á morgun? Er það ekki í kvöld? :)

  4. ....

    20. March 2014

    Blue Lagoon vörurnar eru án ilm og litarefna…..en stútfullar af hinum ýmsu parabenum ;)

    • Nei, það er alls ekki rétt það á alla vega ekki við um vörurnar sem ég hef notað frá merkinu eins og hreinsivörurnar þær eru án allra paraben efna :) Heimasíðan þeirra er frábær og bíður uppá góðar innihaldslýsingar á öllum vörunum. Ef það eru eh paraben efni í öðrum vörum en þeim sem ég hef prófað þá eru það líklega skaðlaus paraben efni. Þetta er merki sem leggur áherslu að vera með hreinar og góðar vörur sem henta sem flestum og sérstaklega íslensku húðinni :) Ég er alla vega virkilega hrifin og ég veit um nokkrar í kringum mig sem eru með ofnæmi fyrir paraben og hafa getað notað hreinsivörurnar þeirra :)

  5. Valdís

    20. March 2014

    veistu hvortb það sé líka afsláttur í mac ?

    • Nei því miður, ég veit ekki hvort þær séu teknar með inní megadagana í Debenhams. Tékkaðu endilega á facebook síðunni þeirra ;)