fbpx

Kolaportið á Laugardaginn:)

Þá er komið að því að taka almennilega til í skápunum áður en litli kall lætur sjá sig. Ég verð inní Koló á Laugardaginn (bara annan daginn), básinn er fremstur á sínum gangi, beint á móti makeup básnum (viðeigandi) og hinum megin við ganginn frá dótabásnum. Ég vona að ég sjái sem flesta ég get lofað því að það verður nóg af alls konar góðgæti, merkjavöru, ónotuðum flíkum og stuði – ég verð flóðhesturinn í básnum ég get ekki farið framhjá ykkur!

Hér er smá sýnishorn af því sem verður í boði:Ansi þétt setinn fataskápur – annar af tveim – nú er kominn tími til að gera smá pláss fyrir falleg barnaföt:)

Sjáumst á laugardaginn!

EH

Monki vs Paul Smith SS 2013

Skrifa Innlegg

24 Skilaboð

  1. Erna Viktoría

    19. September 2012

    Ég kem ég kem!!
    En eitt tips svona okkar óléttu á milli… vertu með nóg af vatni og GÓÐAN stól til að setjast í af og til :)

  2. Erna Viktoría

    19. September 2012

    …við gátum einmitt keypt undursamlega fallega kommóðu fyrir peninginn sem vð fengum þegar að við Kristján fórum í Koló :)

  3. Edda Sigfúsdóttir

    19. September 2012

    Ansans leiðindi að missa af þessu! Ég sé það er ýmislegt spennandi þarna! Gangi þér rosalega vel og góða skemmtun!:)

  4. María

    19. September 2012

    Má ég gerast svo djörf að spyrja í hvaða stærðum fötin eru? :)

    • Reykjavík Fashion Journal

      19. September 2012

      heyrðu það verður eitthvað í öllum stærðum! Ég er mjög mikið í því að kaupa ekkert endilega alltaf sömu stærðirnar, kaupi bara í þeim stærðum sem mér finnst flíkin flott á mér í hvert sinn;)

  5. Linda

    19. September 2012

    Ég mæti og kíki á þessar kósý peysur :D hlakka til

  6. Linda

    19. September 2012

    falleg föt… ! Eru þessi föt að fara ódýrt ? langar að kíkja við :)

  7. loa

    19. September 2012

    Hallo “sæti flóðhestur;D” grín, halló fallegust:) kl hvað opnar aftur kolaportið?

  8. loa

    19. September 2012

    er nokkuð úlpa á nikkolínu?

  9. Hólmfríður Sunna

    19. September 2012

    Klukkan hvað verðuru í Kolaportinu, opnar 11 :)?

  10. Lára

    20. September 2012

    Oooo eitthverja hugmynd um hvað þú munt selja fína leðurjakkann á??

  11. Lára

    20. September 2012

    Í hvaða stærð er hann?

  12. Nafnlaust

    20. September 2012

    Í hvaða stærð er fallegi svarti leðurjakkinn með kögrinu? :)

  13. Íris Tanja

    20. September 2012

    úúúú þessi kósý svarta og hvíta peysa er merkt mér! Sé þig í koló sæta mín og bumbi minn! :*

  14. Lára

    20. September 2012

    Ekki gæti ég platað þig til að selja mér hann fyrir Koló? Búin að vera leita að svona lengi og þessi er svo fínn.
    Og auðvitað svo óheppin að vera vinna frá 10-6 á laugardaginn!!
    hehe

    • Reykjavík Fashion Journal

      20. September 2012

      Hæ því miður það er svo mikil eftirspurn eftir honum að ég kann ekki við að gera það…. en hann er annars í stærð 38:)

  15. Íris

    21. September 2012

    Í hvaða stærð er svarta síða peysan? :)