Ein erfiðasta ákvörðunin sem ég held ég muni taka í tengslum við væntanlegt brúðkaup er kjóllinn. Ég er hreinlega bara með valkvíða. Ég leita mér innblástrar útum allt og mér datt í hug að skoða svona þessa helstu kjóla sem ég hef verið hugfangin af í gegnum tíðina úr kvikmyndum og brúðkaupum fræga fólksins.
Ein ákvörðun hefur verið tekin með kjólinn minn og ég get ekki lýst því hversu ánægð ég er með hana og hversu vandræðalega spennt ég er fyrir öllu sem er framundan tengt kjólnum. Ég ætla mér ekki alveg að kjafta strax frá því það er enn dáldið í daginn en ég gef ykkur auðvitað smá innsýn í þetta allt þegar nær dregur. Ég er samt svo ráðvillt með kjólinn minn ennþá. Þegar ég var lítil var ég auðvitað alveg með það á hreinu hvernig hann ætti að vera en í dag finnst mér sú útgáfa ekki alveg henta mér :)
Grace Kelly
Þessi er auðvitað bara einstakur og kjóll sem margar konur líta til við hönnun kjólsins síns.
Kate Moss
Einn af mínum all time uppáhalds brúðarkjólum. Mér finnst eitthvað við sniðið minna mig á Skellibjöllu sem er auðvitað karakter úr Pétri Pan sem er uppáhald teiknimyndin mín.
Gwen Stefani
Ó hvað ég dái og dýrka þennan kjól!
Jessica Biel
Það er eitthvað við þennan fallega kjól sem kallar á mig, mögulega er það óvenjulega áferðin á litnum.
Kate Middleton
Þessi er auðvitað fullkominn í alla staði. Ég man svo vel eftir þessum degi en við stelpurnar í vinnunni fylgdumst grannt með athöfninni og þá sérstaklega þegar hún steig útúr hestvagninum og kjóllinn fallegi sást loks.
Nicole Richie
Afsakið slæm gæði, besta myndin sem ég fann og mér fannst ég ekki geta sleppt þessum.
Jacqueline Kennedy
Þessi kona er ein af þeim fallegustu sem uppi hafa verið.
Victoria Beckham
Eitt farsælasta stjörnuhjónabandið og kjóllinn minnir óneitanlega á annan sem kom mörgum árum seinna…
Carrie Bradshaw
Ég hef aldrei tekið eftir þessu áður en núna þegar ég var að fara yfir kjólana í gærkvöldi þá fannst mér þeir virkilega líkir sérstaklega í kringum barminn.
27 Dresses kjóllinn sem aldrei var notaður
Chick Flick aðdáendur ættu að kannast við þennan kjól en ég féll fyrir honum samstundis. En Malin Akerman sem lék systur Katherine Heigl í myndinni æltaði að klæðast þessum í sínu brúðkaupi sem aldrei varð neitt úr – alla vega ekki svo við vitum til.
Bianca Jagger
Svo falleg dragt og ég dýrka þó mest hattinn og slörið.
Eitt smáatriði í mjög svo eftirminnilegum kjól Sólveigar Káradóttur finnst mér þó vera eitt af þeim sem stendur mest uppúr þegar ég fer yfir alla fallegu brúðarkjólana sem ég hef rennt í gegnum undanfarið…
Nöfn brúðhjónanna höfðu verið saumuð út í kjólinn. Ótrúlega fallegt smáatriði sem gerir flíkina einstaka og fallega minningu um vafalaust fullkominn dag. Ég las það á Vogue að Stella McCartney sem hannaði kjólinn hafði sjálf stungið uppá þessu. Ég fæ eiginlega bara gæsahúð þegar ég horfi á þessa mynd sem er tekin af okkar bestu Sögu Sig.
Ég var þó búin að segja ykkur frá því að ég ætla að vera með slörið sem amma var með þegar hún giftist afa mínum fyrir utan hjónaband foreldra minna er það eitt það farsælasta sem ég þekki. Ég mátaði það um daginn og auðvitað myndaðist mikil spenna í maganum – í mínum huga er samt svo langt í þetta en dagurinn verður ábyggilega runninn upp áður en ég veit af!
Hvernig líst ykkur á kjólana sem ég tók saman – einhver sem ykkur finnst vanta?
Skrifa Innlegg