fbpx

Jólagjöfin fyrir nýjar mæður

JólagjafahugmyndirLífið MittTinni & Tumi

mammaþarfaðdjammaVið Aðalsteinn fórum á jólatónleika Baggalúts á föstudagskvöldið og skemmtum okkur konunglega – alla vega eftir að allt miðavesen var komið á hreint. En það er önnur saga…

Á tónleikum Baggalúts er hægt að kaupa alls kyns varning sem tengist hljómsveitinni. Í ár var kynnt nýjung og það voru samfellur. Ég gat ekki annað en keypt þessa stórkostlegu samfellu fyrir son minn. Hún er ekki bara skemmtileg heldur er hún nauðsynleg til að minna soninn á afhverju mamma hans er aldrei heima. Ég er nú ekki í leit að eiginmanni eins og konan í laginu ég á einn heima en mömmur þurfa stundum að fá að djamma smá. Nei ég segi nú bara svona ég er nú ekki mikið að djamma ;)

Ég varð að eignast þessa samfellu og ég á reyndar tvær… við keyptum eina en svo var einn tónleikagestur svo hrikalega indæll og hellti yfir hana rauðvíni og flúði af vettvangi. Mamman varð miður sín og fékk að kaupa nýja á helmingsafslætti:)

En frábær jólagjöf fyrir mæður ungra barna og verðandi mæður. Samfellan var til í stærð 60 og 80. Ég hef reyndar ekki grænan grun um hvar er hægt að kaupa hana en ég lofa að ég skal komast að því og láta ykkur vita. Það var líka til samfella fyrir pabbana sem stóð á Pabbi þarf að vinna.

Hrikalega skemmtilegt!

EH

Burstarnir með bleika skaftinu

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Helgi Omars

    8. December 2013

    Endilega láttu mig vita ef hægt er að kaupa þetta einhversstaðar :D! x