fbpx

Jólagjöf ungu skvísunnar

IlmirJólagjafahugmyndir

Það eru reyndar ekkert svo miklar stórfréttir að ég er forfallinn aðdáandi hljómsveitarinnar One Direction. Ég er alveg húkkt á tónlistinni þeirra og í alvörunni þá hjálpa lögin þeirra mér að komast í almennilegan vinnugír á morgnanna – það er bara þannig!one-direction-making-of-advert

Einmitt núna eru þessi lög í gangi til skiptis í eyrunum á mér á meðan ég vinn mig í gegnum greinar fyrir næsta Reykjavík Makeup Journal….

Ef ég væri rúmum áratug yngri væri svefnherbergið mitt þakið í plakötum og myndum af þeim drengjum. En þeir eða fólkið á bakvið bandið kann þetta og nýlega kom One Direction dömuilmur á markaðinn. Það sem kom mér þó á óvart með þennan ilm var að hann er bara frekar góður og ég gæti alveg séð fyrir mér að nota hann. Ilmurinn heitir Our Moment og með honum fylgir eiginhandaáritun frá öllum meðlimum hljómsveitarinnar.

Ilmurinn er mjög ferskur og ávaxtakenndur. Ilmurinn fangar athyglina með ferskum ilm af bleikum greipávöxtum, krækiberjum og villtum berjum. Hjarta ilmsins angar af jasmín blóminu og grunnurinn samanstendur af mjúkum viðarnótum. Þetta er rosalega flottur ilmur og að sjálfsögðu er hugsunin á bakvið ilminn að aðdáendur drengjanna fái að eiga sitt „móment“ með þeim:)100ml-bottle

Ilmvatnsglasið gæti ekki verið stelpulegra – bleik flaska sem er í laginu eins og demantur og tappinn minnir á kórónu.

Hér sjáið þið auglýsinguna fyrir ilminn – eina sem mér finnst sérstakt við hana er að það er ekki 1D lag undir auglýsingunni… – mér finnst það vanta!

one-direction-perfume

Ilmurinn er fullkomin gjöf fyrir ungu dömununa sem sér ekki sólina fyrir þessum dásamlegu drengjum. Ilmurinn seldist upp á ótrúlega stuttum tíma fyrst þegar hann kom en það er nóg til af honum í augnablikinu en hafið endilega hraðar hendur því svona ilmur selst hratt upp :)

EH

Baksviðs fyrir 2. tbl Reykjavík Makeup Journal

Skrifa Innlegg