fbpx

Ísak Freyr Helgason

Ég fyllist alltaf svo miklu stolti þegar íslendingum vegnar vel erlendis. Ég er sérstaklega lukkuleg núna því ég var að sjá að góðvinur minn var smá að slá í gegn í London í dag. Ísak var í EMM skólanum sem ég lærði í rétt á undan mér og ég hef fylgst vel með honum síðan þá, hann er svo klár og hæfileikaríkur og er svo sannarlega að fara að slá í gegn. Hann farðaði Juliu Restoin Roitfeld og Suki Waterhouse fyrir Burberry sýninguna sem fór fram í London í dag en áður hafði hann farðað Suki fyrir GQ verðlaunin sem fóru fram í byrjun september.

Ég býð spennt eftir því að sjá hvaða stjarna leitar næst til hans – þær ættu alla vega ekki að hika við það:)

EH

Metallic Klassík hjá Meistara Bailey

Skrifa Innlegg