Ég leit við inní Madison Ilmhús í Aðalstræti núna í dag. Ég hef lengi ætlað að gera mér ferð í þessa verslun og lét loksins verða af því. Ofboðslega skemmtileg sérverslun með vörur sem ég er mjög spennt fyrir að prófa og kynna mér betur.
Ég er búin að mæla mér mót við verslunina og starfsmenn hennar seinna í vikunni. Þá ætla ég að fá að vita meira svo ég geti sagt ykkur betur frá vörunum og conceptinu. Ég verð að sjálfsögðu vopnuð myndavélinni fínu til að sýna ykkur allt það skemmtilega og nýja sem er í boði fyrir okkur þar.
Hér sjáið þið nokkrar myndir úr versluninni sem ég fékk að láni á Facebook síðu verslunarinnar sem þið finnið HÉR.
Hlakka til að sýna ykkur meira og segja ykkur betur frá:)
EH
Skrifa Innlegg