fbpx

Hugsið Vel Um Burstana Ykkar

Einn ekki svo mikinn letidag tók ég mig til og þreif flest alla penslana mína. Það er mjög mikilvægt að hugsa vel um förðunarpensla og þrífa þá reglulega að nota burstahreinsi er ekki eins gott og að þrífa þá almennilega með sápu. Þar sem þeir eru flest allir úr ekta hárum þá finnst mér best að nota sjampó og ef ég vil vera extra góð við þá læt ég þá liggja með hárnæringu í smástund – mér finnst sérstaklega gott að gera það við stóru púður- eða farðaburstana því þeir fara yfir allt andlitið. Skolið burstana í volgu vatni en passið að vatnið fara ekki langt yfir hárin því þá getur límið losnað smám saman og burstarnir farið að fara meira úr hárum eða skaftið losnað af. Eins og þið sjáið þá er safnið ansi stórt enda spannar það yfir 6 ár! Ég skil stundum ekki hvernig ég fer af því oft að nota 70-80% af þeim í einu verkefni…..Hér er svo fallega safnið mitt hreint og tilbúið í næsta verkefni!!

EH

Great Lash - Limited Edition

Skrifa Innlegg