fbpx

Holster – Fyrir Hann

Ég Mæli MeðFallegtFashionJólagjafahugmyndir

Ég hef oft á síðunni minni montað mig af því hvað ég vinn með hæfileikaríku fólki en meðal þeirra sem vinna inná stofu eru 2/3 af teyminu sem hannaði Holster vestið.

Vestið er sérstaklega vel hannað að því leytinu til að í því koma strákar öllu því sem þeir þurfa á að halda yfir daginn – peningum, lyklum, heyrnatólum, penna, kortum, sólgleraugum og að sjálfsögðu símanum. Vestið finnst mér fullkomin jólagjöf fyrir karlmanninn sem er í lífi flestra kvenna því það er stílhreint og passar við allt – ég lofa því, mínir samstarfsmenn nota það alla vega við allt og það er alltaf flott.

HÉR getið þið lesið ykkur aðeins til um hugmyndina og strákana sem standa að baki hönnunarinnar og HÉR fáið þið betri upplýsingar um vestið, notagildi þess og getið keypt það.

EH

Jólarauðar L'Oreal varir

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Magna Rún

    20. December 2012

    Minnir óneitanlega á “mínívestin” hennar Luxirare :)