Ég og minn yndislegi fórum í smá bíltúr um helgina um Reykjanesið og rákumst á stað sem ég hvorugt okkar hefur komið á áður, Garðskaga, en á honum er falleg hvít strönd. Mér leið eins og ég væri stödd í útlöndum veðrið var svo yndislegt, himininn heiðblár og sjórinn tær og fallegur. Mæli með því að fólk geri sér aðeins lengri bíltúr á næsta sólardegi og fari þangað en ekki í Nauthólsvíkina.
Aðalsteinn tók þessar myndir á símann sinn ég er alveg kolfallin fyrir Iphone þó mig hafi ekkert langað í hann fyr en allt í einu núna, en minn kemur fljótlega er búin að semja við kæró að fyrst ég gaf honum Iphone 4 þá gefur hann mér Iphone 5 þegar hann kemur út, frekar sátt með þann díl;)
Klæðnaðurinn var ekki alveg uppá sitt besta þennan daginn sýni ykkur betur stílinn minn seinna, en hann einkennist helst af Ebay gersemum;)
Skrifa Innlegg