fbpx

Gærdagurinn/kvöldið

Blog

Dagurinn minn fór allur í að vinna með frábæru fólki og yndislegustu stelpum í heimi. NEXT/Eskimo fyrirsætukeppnin var haldin í gær og Gyða (á efri myndinni) fór með sigur og í verðlaun fær hún meðal annars vikuferð til New York þar sem hún fær að spreyta sig sem NEXT fyrirsæta en 3 íslenskar Eskimo fyrirsætur eru á skrá hjá þeim, Brynja Jónbarnar, Elmar Johnson og Kolfinna Kristófers. Ég öfunda svo sannarlega ekki dómarana fyrir að hafa þurft að velja ég hefði aldrei getað gert uppá milli en Gyða stóð sig frábærlega vel og ég hlakka til að fá að vinna með henni vonandi bráðlega. Steinunn María (neðri mynd) var svo valin andlit Maybelline og fékk dýrindis körfu troðfulla af vörum frá Maybelline. Frábært kvöld að baki og í dag ætla ég að liggja með tærnar uppí loft alla vega frameftir degi:)

Gleðilegt Sumar!

EH

Kjúklingasalat:) #dinner (Taken with instagram)

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Elísabet Gunn.

    19. April 2012

    Takk fyrir upplýsingarnar. Ég var búin að leita án árangurs af sigurvegaranum…. Flottar stelpur! Njóttu frídagsins xx

    • Erna Hrund

      23. April 2012

      Minnsta mál! – og takk hann var yndislegur:)