fbpx

Eitt Stórt Klapp Fyrir Hr. Wang

Eða fleiri – sýningin hans Alexander Wangs sló í gegn hjá mér eins og oftast áður. Leður, gegnsætt og nýstárlegir gladiator sandalar og hælar. Litavalið er einfalt svart hvítt og grátt og sniðin eru eins og við eigum að venjast frá Wang – klæðileg en samt víð, breiðar axlir en líka aðsniðnir kjólar. Hér sjáið þið hvað er í boði.
Loksins kom líka smá fútt í makeup-ið. Ekki það að nude lúkkið og sterkar augabrúnir eru venjulega staðlaða lúkkið hjá Wang en svarta límbandið í hárrótinni er nýtt þó svo það minni að sjálfsögðu á eyelinerinn í hárlínunni hja Chanel. En límbandið lúkkar svona eins og fylgihlutur sem passar við allt á pallinum:)

EH

Rufflur Hjá Prabal Gurung

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1