fbpx

Dýrðin á Paris Fashion Week

Ég er ennþá svolítið föst í tískuvikugírnum. Þessa dagana er ég að renna yfir allar myndirnar og kíkja aðeins betur á trendin sem verða áberandi næsta sumar og það sem mér finnst skemmtilegast að fletta í gegnum, makeup myndirnar. Svo þið getið ímyndað ykkur að ég er að bölva mikið nude æðinu sem kemur yfir hönnuði þegar þeir sýna sumarlínurnar sínar;) En ég rambaði á þessar fallegu stemmingsmyndirnar frá tískuvikunni í París og mig langar að deila nokkrum með ykkur. Ljósmyndarinn er Alessandro Galofaro og honum tekst á ótrúlegan hátt að fanga nákvæmlega heildarlúkkið á sýningunni á hverri mynd.Þessar síðustu sýningar sem eru oftast þær sem allir bíða eftir að sjá eiga það allar sameiginlegt að umgjörðin í kringum þær var stórkostleg – þó ég geti ekki sagt það sama um öll fötin sem komu niður eftir pallinum.

EH

OMG - HOMG

Skrifa Innlegg