fbpx

Dupe á varalitnum hennar Beyonce ;)

Bobbi BrownÉg Mæli MeðLúkkmakeupMakeup ArtistMakeup TipsSnyrtibuddan mínVarir

Nú veit ég ekkert hvaða varalit hún Beyonce var með á Grammy verðlaunahátíðinni í gær. Reyndar er ég ekki sérstaklega búin að leggja á mig að leita nafnið uppi því ég á einn uppí hillu sem er nákvæmlega eins – það finnst mér alla vega. Liturinn er úr einni af uppáhalds varalitalínunum mínum sem heitir Creamy Matte og er fá merkinu Bobbi Brown.

Ég hef oft áður skrifað um Creamy Matte litina en þeir eru ríkir af lit og gefa þétta og matta áferð á varirnar án þess að hún verði of þur. En það er endingin sem heillar mig mest – þeir endast fullkomnir eins lengi og maður þarf það er eiginlega bara fáránlegt!

Hér sjáið þið litinn sem um ræðir….

grammys-2014-beyonce portLiturinn heitir Port og er sjúkur – hann virðist aðeins brúnni en hann er en liturinn breyttist smá við örlítið lýsingarfikt í photoshop :)

Mæli með því að þið kíkið á þennan og bara þessa varaliti almennt!

EH

Pakka niður...

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1