Við erum komin heim eftir helgi í paradís. Hvítasunnuhelginni var eytt í faðmi fjölskyldunnar á Drangsnesi á Ströndum. Það var svo ljúft að komast í hreina sveitaloftið. Svo eins og í öllum útá land ferðum þá er ein fjöruferð nauðsynleg. Í þetta sinn var grenjandi rigning og svo þá var ekkert annað í boði en að skella sér í regnkápu – eini skóbúnaðurinn með í för voru yndislegu Nike skórnir mínir sem komu mér skemmtilega á óvart og héldu fótunum mínum skraufþurrum!
Takk fyrir mig Drangsnes ég hlakka til að mæta aftur – en nú er alvaran tekin við það er nóg af spennandi verkefnum framundan í vikunni hjá mér;)
EH
Skrifa Innlegg