fbpx

Disney Þorpararnir eru Mættir hjá e.l.f.

Þetta er ekki í fyrsta sinn og líklega ekki í það síðasta sem þessar persónur veita innblástur í makeup bransanum. Núna nýlega komu á markaðinn pallettur frá merkinu e.l.f. (eyes lips face) sem innihalda allt það sem þarf til þess að ná lúkki Cruellu De Ville (101 Dalmatíuhundur), Maleficent (Þyrnirós) og The Evil Queen (Mjallhvít). Palletturnar innihalda ekki bara allt makeup sem þarf til að ná lúkkinu heldur líka leiðbeiningar! Palletturnar eru á lygilega góðu verði eða aðeins $9.99 hver palletta – ég er þegar búin að bjóða í þær allar á eBay og vonast til að þær verði mínar. Þið getið nálgast vörurnar frá merkinu HÉR – en það verður gaman að sjá hvort þessar pallettur rati til landsins.

Á sama tíma var síðan Öskubusku línan frá Sephora að mæta í verslanir – pallettan sem ég var búin að láta mig dreyma um er uppseld en fáanleg á uppsprengdu verði á eBay ég sé hvort ég láti freystast….:/

EH

Jean Paul Gaultier - Störnurnar Gengu Pallinn

Skrifa Innlegg