fbpx

Disney Prinsessur í Sephora

Blog

Ég er búin að vera virkilega spennt síðan ég frétti að Sephora ætlar að gefa út snyrtivörulínu sem þar sem innblástur fyrir vörurnar er fenginn frá Disney prinsessunum sjálfum. Það er eitthvað sem ekki hefur ennþá verið gert en fyrir um það bil ári síðan gaf MAC út línu sem var byggð á vondu karakterunum úr þekktustu Disney ævintýrunm og nokkrum árum áður gáfu þeir út línu sem hét Barbie.
Línan á að koma út í október og verða meðal annars ilmir, förðurnarvörur og naglalökk í boði. Ég er alla vega nú þegar komin í starthólana og ætla að eignast hluti sem eru tileinkaðar mínum all time uppáhalds prinsessum sem eru Fríða, Ariel, Garðabrúða og Öskubuska:) Það hefur samt verið nóg að gera undanfarið hjá Disney því núna 27. ágúst kemur út demants útgáfa af Öskubusku á DVD og Blue Ray og að því tilefni bjuggu snillingarnir hjá Christian Louboutin Öskubúsku skónna í Louboutin stílnum eða með rauða sólanum sem er einkenni skónna þeirra. Fallegir skór sem ég hefði ekkert á móti því að eingast – þó ég myndi nú frekar kjósa að eignast hina einu sönnu glerskó.

Nóg af skemmtilegum fréttum fyrir Disney aðdáendur!

EH

Útsýnið mitt þessa stundina:) (Taken with Instagram)

Skrifa Innlegg