fbpx

Dip Dye Munstur

Blog

Ég skil ekki afhverju ég er ekki ennþá búin að ná að tie dye-a rauðu buxurnar mínar a la Isabel Marant en ég kenni kannski 2 vinnum, utanlandsferð og vikulöngum veikindum. Í dag á ferð minni um veraldarvefinn rakst ég svo á þessar myndir þar sem er búið að dýfa munstruðum flíkum í lit. Mér finnst þetta mjög skemmtileg hugmynd á einmitt einn munstraðan jakka sem þarf smá upplyftingu og kannski er þetta bara málið. Ábyggilega líka töff að gera þetta við chiffon skyrtur til dæmis. Ég sé til hvort þetta takist hjá mér en ég lofa engu;)

EH

Ný Blöð

Skrifa Innlegg