fbpx

Dagurinn í Dag..

Blog

.. var rosa kósý, stærsti parturinn fór í það að leita að buxum fyrir úrslitin í dans dans dans fyrir Aðalstein sem loksins fundust eftir að við þræddum alla Smáralindina og vorum þá löngu búin að missa töluna á öllum þeim buxum sem hann hafði mátað!

Leiðin lá svo í sumarbústað í Grímsnesi til að fanga 30 ára afmæli mágs míns. Ótrúlegt hvað landið okkar verður bara fallegra þegar það er komið í hvíta kjólinn sinn;)

Peysa: eBay HÉR
Skyrta: eBay
Hálsmen : Lindex

Stundum finnst mér ég ofnota þessa peysu en hún er bara svo þæginleg og passar við allt! Vona að þið sem hafið keypt hana hjá mér séuð jafn ánægðar og ég:)

EH

Nýr Uppáhalds***

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Erna Björk

    27. November 2011

    haha ég er endalust í henni líka.. finnst hún æði! :)

  2. Rut R.

    28. November 2011

    ohhh ég líka.
    var einmitt að hugsa það í morgun þegar ég henti mér í hana að ég væri líklega aðeins að ofnota hana!! :)

  3. Erna Viktoría

    28. November 2011

    Ég líka! :D elskana!