fbpx

Bloggáskorun!

Eins og ég sagði frá fyrir nokkru síðan þá hugðis ég útbúa mína eigin bloggáskorun. Þemað er að sjálfsögðu snyrtivörur og hér fáið þið að sjá lokaútkomuna.

Mér fannst kannski 30 dagar vera aðeins of mikið sérstaklega þar sem það er nú komið sumar og ég ætla mér ekki alveg að sitja föst við tölvuna í margar vikur. En þar sem það eru miklar ferðahelgar framundan þá hef ég ákveðið að birta áskoranirnar á virkum dögum.

Ástæðan fyrir því að ég ákvað að útbúa mína eigin áskorun var af því þær sem ég fann á netinu snerust alfarið um að segja bara frá uppáhalds augnskugganum, uppáhalds varalitnum o.s.frv. En þið sem eruð farnar að þekkja mig vitið að ég kann ekki að gera uppá milli snyrtivara og svo finnst mér ekkert skemmtilegra en að skrifa langa og mikla texta;) Svo fannst mér líka kostur að geta haft textann á íslensku – fannst það bara passa betur.
Ef ykkur líst vel á þessa áskorun mína þá hvet ég ykkur til að taka þátt. Þið þurfið að sjálfsögðu ekki að taka þátt alla dagana heldur getið þið líka bara tekið þátt í því sem ykkur líst á. Þið getið þá birt útkomuna á bloggsíðu sem þið eruð með, sagt ykkar skoðanir í athugasemdum við færslurnar mínar eða tekið þátt í gegnum Instagram með því að merkja #trendnet og #trendmakeup – ég ætla að vera dugleg að fylgjast með og hver veit nema ég lumi á verðlaunum fyrir eigendur mynda sem mér finnst bera af.

Hlakka til að birta fyrstu færsluna á þriðjudaginn – 17. júní ætla ég nefninlega að eyða í bænum með strákunum mínum!

EH

Toppur eða ekki?

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Thorunn

    14. June 2013

    ahh skemmtó en soldið mikil vinna hahaha

      • Thorunn

        15. June 2013

        já væri gaman að gera það skemmtielgasta af þessu ;)