fbpx

Beyonce Verslun

Fræga FólkiðShop

Við værum nú ekki að standa okkur í stykkinu hér á Trendnet ef við myndum ekki tilkynna ykkur allt sem Beyonce væri að gera skemmtilegt. En í tengslun við Mrs. Carter tónleikaferðalagið hennar opnaði hún vefverslun þar sem hægt er að kaupa flíkur sem hún hannaði. Þar er hægt að fá stuttermaboli, háskólaboli, hlýraboli, töskur og derhúfur með myndum eða stöfum drottningarinnar. HÉR getið þið séð það sem er í boði – og já hún sendir til Íslands;)

Sjálf væri ég mest til í þessa svörtu derhúfu – hún kostar tæpar 3000 kr
án sendingarkostnaðs og tollgjalda á genginu í dag.

Svo ef þið eruð stödd í H&M landi þá er hún líka með fullt af spennandi flíkum í þeim verslunum eins og t.d. þennan fallega kjól – HÉR.

Hvet ykkur svo til að kíkja líka á nýjustu makeup færsluna mína HÉR – en þar fer ég yfir alls konar sniðugt í sambandi við hyljara og segi frá nokkrum af mínum uppáhalds týpum;)

EH

Hyljarar eru stórkostleg uppfinning!

Skrifa Innlegg