fbpx

Ást í Grease

Sumarið 2009 var ég svo heppin að fá starf sem aðstoðarleikstjóri og sýningarstjóri í Grease sem var sett upp í Loftkastalanum. Í sýningunni var ótrúlega sætur dansari sem ég kolféll fyrir á æfingatímabilinu og þremur árum seinna erum við trúlofuð með lítill Grease-ling á leiðinni í heiminn. Þessi saga mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu og þess vegna finnst mér ótrúlega gaman að RÚV skuli hafa tekið uppá því að sýna hana í kvöld. Ég sit núna í sófanum fyrir framan sjónvarpið með hormónatár í augunum og syng með Beuty Schoold Dropout!

Það skemmir svo ekki fyrir hvað myndin er falleg fyrir augað. Tímabilið er mitt uppáhalds í klæðum og förðun nefninlega. Mæli með að þið stillið yfir á RÚV sem getur ennþá komið manni á óvart með ágætri sjónvarpsdagskrá:)

EH

Takk Fyrir Komuna!

Skrifa Innlegg