fbpx

Afmæli:)

Blog

Litli bróðir minn hélt uppá afmælið sitt í dag að því tilefni kom öll fjölskyldan saman hjá ma og pa og gæddi sér á dýrindis kökum. Ég skellti í afmælis cupcakes handa stráknum og lét hann blása á 20 kerti. Ég fékk um daginn óvænta gjöf frá kallinum, hrærivél á standi, og vá hvað það er mikill munur og verður án efa til þess að ofninn á heimilinu verður notaður miklu meira;)

Súkkulaði cupcakes með frosting kremi:)

Það sem er samt alltaf skemmtilegast við afmæli bróður míns er að þá er mitt handan við hornið – aðeins 19 dagar í 22 ára afmælisdaginn… úff talan verður alltaf hærri og hærri;)

Hér eru nokkrir hlutir á óskalistanum mínum:

Kjóll frá Kron by KronKron

Undursamleg peysa frá Kron by KronKron

Barðastaðir kápan frá Farmers Market

Hunter stígvél - þessi frá Jimmy Choo helst;)

og ef við vinnum stóra pottinn í Víkingalottói á miðvikudaginn þá gef ég sjáfri mér þessa kápu úr Burberry Prorsum SS 2011 línunni – sem ég hef talað um nokkrum sinnum áður hér;)

EH

Komin aftur*

Skrifa Innlegg