fbpx

EINFALDUR HUMMUS –

12939669_10156799641270051_130336202_n

 

Ég.elska.hummus. (!)

Vil troða honum á allt og með öllu sem ég borða.

Ég nota þessa uppskrift hér frá Cafe Sigrún – þú ert svona max 7 mín að gera hann, en stundum breyti ég örlítið til og set kóríander (annar matur sem ég vill troða á allt og með öllu!) eða ferskt chilli.

1 dós (240 g án vökvans) soðnar/niðursoðnar kjúklingabaunir
1-2 stór hvítlauksrif
2 msk tahini (sesammauk)
1,5 msk sítrónusafi
1 tsk tamarisósa
Smá klípa cayennepipar eða paprika
0,25 tsk cumin (ekki kúmen)
20 ml af vatni eða sojamjólk
40 ml ólífuolía (sumir nota meiri ólífuolíu)
Salt (Himalaya eða sjávarsalt) eftir smekk
Svartur pipar eftir smekk

  1. Hellið öllu vatni af kjúklingabaununum og setjið þær í matvinnsluvél. Maukið í um 10 sekúndur.
  2. Afhýðið hvítlaukinn, saxið hann smátt/pressið hann og bætið honum út í ásamt tahini, sítrónusafa, tamarisósu, cayennepipar og cumin.
  3. Maukið allt saman í um 30 sekúndur eða skemur ef þið viljið grófari áferð.
  4. Kryddið með meiri tamarisósu og svörtum pipar. Einnig má bæta aðeins við af tahini ef þið viljið meira bragð af því.
  5. Á meðan vélin vinnur skuluð þið hella ólífuolíunni út í hummusinn í mjórri en stöðugri bunu. Ef þið viljið hummusinn þynnri má bæta vatni eða sojamjólk út í.
  6. Berið fram í skál og dreifið smá klípu af cayenne pipar yfir. Einnig er gott að setja 1 tsk af ólífuolíu yfir hummusinn ásamt kjúklingabaunum og coriander ef þið viljið.

Mæli með !

x hilrag.

MONDAY -

Skrifa Innlegg