Ég varð 25 ára núna á laugardaginn & fagnaði með vinum og fjölskyldu. Yndislegur dagur í alla staði. Ég fór í vinnuna og fékk aðsent afmælis-Lemon, afmælissöng og blóm. Síðan tók við fjölskylduboð, síðan party og dans í bænum !
Mexican þema í boðinu – það er uppáhaldsmaturinn minn.
Hot dip, mismunandi týpur af quesadillas, guacamole, nachos.
Síðan gerði mamma alveg svakalega góða grænmetissúpu sem maður toppaði svo með kjúkling, mangoavocadosalsa með kóríander & chilli olíu.
Ég gerði þessa bollu annað árið í röð fyrir afmælisparty-ið. Hún er svo litrík & sumarleg!
Cranberry djús, sódavatn eða sprite, mynta, jarðaber, sítróna, Reyka vodka & fuuullt af klökum.
Eins og sönnu afmælisbarni sæmir standa hátíðarhöldin út vikuna hjá mér! haha
Takk kærlega fyrir allar kveðjurnar ♥
x hilrag.
Skrifa Innlegg