Hélduð þið að ég væri búin – ég held nú ekki!! Svo er ég með meira á morgun ;)
Í dag eru það fjórir heppnir lesendur sem fá glaðning frá mér og Maybelline. Ég ætla að gefa maskaragjafaöskju frá merkinu sem inniheldur mínar uppáhalds vörur frá Maybelline, Rocket maskarann og Master Precise eyelinertússinn sem þið getið einmitt notað til að gera eyeliner með spíss eins og ég sýni HÉR. En mér fannst þetta eiginlega ekki alveg nóg ég varð að bæta við þeirri vöru frá merkinu sem ég get eiginlega ekki lifað án og það er naglalakkasvampurinn. Munið þið ekki eftir þessum HÉR. Enn þá í dag er þessi naglalakkahreinsir mesta snilld sem ég hef prófað.
Eins og áður þá er það sem þið þurfið að gera til að eiga kost á því að eignast þennan fína gjafapakka frá Maybelline er að setja like á þessa færslu – ef þið eruð ekki enn að fylgja mér á Facebook þá smellið þið á like á síðunni minni HÉR – og skiljið svo eftir smá athugasemd við þessa færslu. Ég dreg út fjóra heppna lesendur í fyrramálið um leið og ég segi frá næsta glaðning sem ég ætla að gefa ;)
Hér sjáið þið svo hver það var sem hreppir Chanel glaðning gærdagsins! Til hamingju Ragna þú mátt senda mér línu á ernahrund(hjá)trendnet.is með upplýsingum um þig svo ég geti sent á þig glaðninginn***
Mér finnst í alvörunni ekkert skemmtilegra en að gefa yndislegu lesendum mínum svona fínar gjafir. Þetta er besta leiðin til að þakka fyrir sig, tryggðina sem þið sýnið mér með því að koma á síðuna mína og lesa hana aftur og aftur – takk kærlega fyrir frábært ár!
EH
Skrifa Innlegg