Ég ætla að leyfa þessari færslu að vera fyrstu færslu dagsins svo hún nái til sem flestra – í lok dagsins fær nefninlega einn heppinn lesandi síðunnar minnar frá jólaglaðning frá mér og Dior!
Varan sem ég ætla að gefa er gjafasett sem inniheldur þrjá mismunandi varaglossa frá merkinu, eldrautt naglalakk og varaliapensil. Vörurnar koma í sjúklega flottir gjafaöskju frá Dior sem er líka hægt að nota bara sem veski – þið getið nefninlega fjarlægt standinn sem er með vörunum úr buddunni.
Einn af varalitnum sem er í buddunni er nr. 999 – það er eldrauði liturinn frá Dior og naglalakkið er í alveg sama lit. Er ekki dáldið flott að vera með varir og neglur í stíl yfir hátíðirnar.
Líst ykkur ekki vel á þetta?
Það sem þið þurfið að gera til að eiga kost á því að eignast þessa fínu snyrtibuddu er að setja like á þessa færslu – ef þið eruð ekki enn að fylgja mér á Facebook þá smellið þið á like á síðunni minni HÉR – og skiljið svo eftir smá athugasemd við þessa færslu. Ég dreg út heppinn lesanda í fyrramálið um leið og ég segi frá næsta glaðning sem ég ætla að gefa. Ég er í voðalegu gjafastuði þessa dagana og þið munið njóta góðs af því!
EH
Skrifa Innlegg