Spice Girls þarf líklega ekki að kynna neitt sérstaklega –
það er eiginlega fáranlegt að spá í því hvað þær áttu heiminn frá 1994 til ca 2000!
4 lötur, 12 singles, polaroid myndavélar, barbie dúkkur, sleikjóar, tyggjó, föt, hálsmen, töskur, bíómynd, vespur, svitalyktaeyðir, pepsi dósir – listinn er endalaus!
ég var svo ótrúlega heppin að fara á Spice Girls tónleika þegar ég bjó í London – það var eiginlega ekki hægt að lýsa því hvað það var gaman!
Gaman að sjá hvað það hefur mikið af þessari tísku komið aftur –
brjóstahaldari og blazer kombó-ið er eitthvað sem ég skil ekki alveg.
SPICE UP YOUR LIFE!
x hilrag.
ps.Ég held að það sé vel hægt að kenna Spice Girls um áráttu mína að troða peace merki inná allar myndir sem eru teknar af mér,
þið vitið hvað þeir segja : “when in doubt, peace and pout” ;)
ps. 2 – þetta er held ég lengsta blogg sem ég hef skrifað – en spice girls eiga það svo sannarlega skilið.
Skrifa Innlegg