fbpx

Nýtt frá Andreu

Annað DressÉg Mæli MeðFallegtFashionLífið MittNýtt í Fataskápnum

Ég fékk að fylgjast með myndatöku fyrir lookbook hjá hönnuðinum Andreu Magnúsdóttur sem rekur verslunina AndreA Boutique og hannar dýrindisflíkur undir sama nafni.

Ég fékk gæsahúð á meðan ég fylgdist með myndatökunni – fötin, makeupið, stemmingin og gullfalleg fyrirsæta – allt var fullkomið! Andrea er ofboðslega hæfileikaríkur hönnuður og svo yndisleg og skemmtileg skvísa!

Á næstunni deili ég myndunum mínum með ykkur en mig langaði aðeins að monta mig af nýjustu gerseminni í fataskápnum sem þið sjáið á myndinni hér fyrir neðan.

Við vorum allar að missa okkur yfir munstrinu og litunum í því og skiptumst á að vera í peysunni – hún fékk þó að fylgja mér heim! Ég er í skýjunum með þessa gersemi sem þið gætuð líka eignast í næstu viku en þá koma nýjar vörur í fallegu verslunina sem er staðsett á Strandgötunni í Hafnafirði.

Peysuna er hægt að nota á marga mismunandi vegu sem ég ætla að sýna ykkur betur seinna – í staðin fyrir að fá Aðalstein til að taka myndir núna þá fylgir hér mynd eftir atvinnuljósmyndara! Aldís Páls var að taka myndirnar fyrir Andreu og smellti einni af mér í peysunni – finnst ykkur peysan ekki æði!

Þessi verður mikið notuð – bæði við casual dress eins og þetta hér fyrir ofan og yfir fína kjóla.

EH

Gelnaglalakk sem endist!

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Andrea

    10. August 2013

    Ótræulega gaman að hafa þig með okkur Erna…. Hlakka til að sjá “bak við tjöldin” myndirnar sem þú tókst… Love
    A

    • Reykjavík Fashion Journal

      10. August 2013

      Takk fyrir að leyfa mér að vera með – og takk fyrir mig*** Er einmitt að fara í gegnum myndirnar núna – það var svo gaman hjá okkur!! knús <3

  2. Elísabet Gunnars

    10. August 2013

    Æ læk og langar .. mjög flott!