Nú fyrir stuttu var það formlega tilkynnt að Diane Kruger myndi sitja fyrir í nýrri auglýsingaherferð fyrir förðunarvörur frá fyrirtækinu. Þýska leikkonan er ekki óvön svona stórum auglýsingaherferðum og þetta er síður en svo sú fyrsta sem hún situr í fyrir tískuhúsið. Áður hefur hún setið fyrir í herferð fyrir Allure ilminni frá Chanel 1996 og síðan árið 2007 sat hún fyrir í herferð fyrir handtöskur sem Karl Lagerfeld myndaði sjálfur. Fyrstu myndir úr herferðinni eiga að fara í loftið seinna á þessu ári.
Ó það verður gaman að sjá hvernig herferðin mun líta út – Diane Kruger og Chanel saman í eitt það getur ekki klikkað!
EH
Skrifa Innlegg