Annað kvöld mun Show Iceland Creation standa fyrir tískusýningu og uppboði á BAR Gallery 46. Þar verður boðinn upp fatnaður úr fatasöfnun Rauða Krossins ásamt fatnaði úr íslenskum vintage verslunum og fatnaði eftir íslenska hönnuði. Meðal þeirra sem gefa fatnað eru: Einvera, Go with Jan, Helicopter, Hildur Yeoman, Kron by Kronkron, Rokk & Rósir, Nostalgía og Líber.
Peningarnir sem safnast á uppboðinu fara í jólaúthlutun Rauða Krossins sem veitir aðstoð til einstaklinga og fjölskyldna um allt land fyrir jólin. Á staðnum verður einnig tekið á móti sparifatnaði sem fjölskylduhjálp Rauða Krossins á Íslandi mun deila til þeirra sem þurfa – það er um að gera að passa uppá það að enginn fari í jólaköttinn í ár.
Endilega kíkið HÉR til að fá meiri upplýsingar um atburðinn:)
Ég hvet ykkur svo sannarlega til að fara og láta gott af ykkur leiða – mig lanar ótrúlega að mæta en það fer þó allt eftir líkamlegu ástandi mér var nefninlega alveg búið að detta í hug að eiga kannski soninn á morgun, dagsetningin er nefninlega efni í ansi góða kennitölu!
EH
Skrifa Innlegg