fbpx

Border Nails

makeupneglur

Undanfarna daga og vikur hef ég séð meira og meira af þessum svokölluðu border nails sem virðist vera það nýjasta í naglalakkstískunni í dag. Ef þið hafið hvorki séð né heyrt um þær þá er ég að tala um eitthvað svona:Hér er greinilega búið að setja einn lit yfir alla nöglina og svo er málað í kringum útlínur litsins með öðru lakki – ég held alla vega að sú leið sé mun hentugri en að gera það öfugt. Það er eitthvað svolítið skemmtilegt við þetta finnst mér en neglurnar á neðstu myndinni með doppunum kalla mest á mig. Það er einfalt að gera svona doppur með hjálp tannstönguls. En ef þið eruð að fýla meira glingrið þá er best að kíkja bara í föndurbúðirnar svo hafa reyndar skvísurnar í Makeup Store alltaf verið með gott úrval af alls konar steinum sem er hægt að nota í makeup hvort sem það er fyrir neglur eða andlit.

Ég mæli með að þið þetta nýja trend næst þegar þið eigið smá dundurtíma – það er gaman að klæða upp neglurnar sínar stökum sinnum.

EH

Instagram Nýjung

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Hilrag

    8. November 2012

    mér finnst þessar neonbleiku sjúkar!

    x