Litli bróðir átti að mæta með einhverjar veitingar í morgunkaffi hjá bekknum sínum í dag.
Í gærkvöldi þegar við vorum að láta okkur detta eitthvað sniðugt í hug, þá mundi eftir ég afmælispoppi sem ég hafði pinnað hjá mér. Upprunalega hugmyndin er frá A Beautiful Mess. En við breyttum aðeins til og notuðum þessa litlu sætu marglituðu sykurpúða sem voru keyptir í Söstrene Grene.
Við poppuðum, bræddum hvítt súkkulaði. Blönduðum svo öllu saman – mjög einfalt.
Skemmtileg hugmynd fyrir næsta partý!?
x hilrag.
Skrifa Innlegg