fbpx

Stella McCartney – Hún Kannetta!

Sýningin fór fram í París núna í morgun og eins og áður heldur Stella sig við það að hafa fötin stílhrein og elegant. Mikið um einlitar flíkur en inní lokin læddust með munstraðar flíkur sem fengu að njóta sín einar og sér.

Það hefur líklegast verið mjög gaman á sýningunni því allar flíkurnar eru mjög fallegar og söluvænlegar og ég sé svo sannarlega fyrir mér að einhverjar muni rata á forsíður tískutímaritanna næsta sumar. Sportleg klæðileg föt er lýsing sem á við flestar flíkurnar þarna. Þó að þær séu einfaldar og margar hverjar einlitar þá eru það efnin sem gera þær svo sérstakar eins og þið sjáið hér fyrir neðan…

Lekkert finnst ykkur ekki?

EH

Disney Þorpararnir eru Mættir hjá e.l.f.

Skrifa Innlegg