Ég kom eldsnemma fram úr rúmminu með syninum, ég er hálf ringluð ennþá og þegar ég sá að Instagrammið hjá mér var stútfullt af tilkynningum um hver það væri sem H&M ætlaði að vinna næst með sá ég að ég yrði nú að staðfesta það á internetinu.
Jújú þetta er satt og mögulega bestu fréttir sem ég hef fengið úr tískuheiminum í langan tíma!!!! Ég þarf klárlega að panta mér flugmiða í H& M land fyrir þessa dagsetningu;)
Alexander Wang x H&M línan á að koma í þann 6. nóvember næstkomandi. Ég verð nú bara að segja að mér líst þónokkuð vel á þetta. Sjálf á ég nokkrar flíkur úr T by Alexander Wang og ég dýrka þær. Ef línan verðue eitthvað lík henni og á svona góðu verði þá verður þetta algjört æði!!!
“I am honoured to be a part of H&M’s designer collaborations. The work with their team is an exciting, fun process. They are very open to pushing boundaries and to set a platform for creativity. This will be a great way for a wider audience to experience elements of the Alexander Wang brand and lifestyle.”
– Alexandar Wang
Hvernig líst ykkur á?
EH
Skrifa Innlegg