Hversu sæt er þessi kápa. Mig langar:)
Styttist í daginn minn, ég verð alltaf eins og lítill krakki daginn fyrir afmælið mitt bara af því þá er minn dagur alveg að koma – best í heimi að vakna við símtal frá Sigga Val frænda mínum sem hefur hringt, sungið afmælissönginn fyrir mig og óskað mér til hamingju með afmælið frá því ég man eftir mér.
Svo ætlum við hjúin að skella okkur í bíó annað kvöld, sýningu Sögu Sig og Hildar Yeoman á laugardaginn og smá afmæliskaffi á sunnudaginn. Næstu dagar verða bara góðir:)
EH
Skrifa Innlegg