fbpx

Vamp Varir

Ég er ótrúlega hrifin af ombre effectinu á vörum í augnablikinu. Svona náið þið flottum vamp vörum sem eru vinsælar þessa stundina;)

Mótið fyrst varirnar með rauðum varablýanti og fyllið inní – nuddið vörunum létt saman svo áferðin og þykktin á litnum verði jafnari. Berið varalitinn svo á – ég setti hann bara beint á varirnar ekki með varalitapensli í þetta sinn af því ég vildi extra mikið af lit svo það yrði auðveldara að blanda svarta litnum útí. Veljið frekar að nota mattari varalit en glossy áferðin verður mun mýkri á svarta litnum ef það er mattur litur undir. Ég notaði svartan eyeliner blýant – passið uppá að hann sé mjúkur – ég byrjaði á því að setja hann yst á varirnar og meðfram ystu varalínunni á bæði efri og neðri vörunum svo nuddaði ég vörunum létt saman og dreifði svarta litnum aðeins inná á varirnar og það er auðvelt að bæta bara örlítið í svarta litinn eftir smekk.

Ég notaði:
Varalitablýantur: nr 547, Please Me Red frá Maybelline
Varalitur: 297, Red Passion frá L’Oreal
Eyeliner: Color Riche svartur frá L’Oreal

EH

ebay - Lets Party

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Pattra's

    7. October 2012

    Flott, me like!

  2. Andrea Röfn

    8. October 2012

    Bjútí :)

  3. Hilrag

    8. October 2012

    OH LALA! Ekkert sma flott

    X