Makeupið hér að neðan veitti mér innblástur fyrir helgarlúkkið. Þið hafið kannski tekið eftir því að ég er alveg sjúk í varaliti þessa dagana og ég er alltaf að leita að skemmtilegum leiðum tl að poppa aðeins uppá venjulega makeupið mitt. Tvílitar varir eru alveg málið fyrir helgina – maður verður að reyna að gera gott úr hlutunum þegar veðrið er svona ömurlegt..:/Ég notaði Color Riche varaliti frá L’Oreal – sá bleiki heitir Intense Fuchsia nr 288 og kóralliturinn er Magnetic Coral nr 373. Þið getið notað hvaða liti sem er og ég held það sé t.d. líka flott að para saman ljósbrúnan og kannski fjólubláan.
Það eina sem þið þurfið að sjálfsögðu að hafa í huga er að nudda ekki vörunum saman – en ef það gerist þá eruð þið bara komnar með flottar ombre varir svo það gerir kannski bara ekkert til;)
Góða helgi!
EH
Skrifa Innlegg