fbpx

Trend – Lög af Fötum fyrir Veturinn

Mér finnst ótrúlega kósý að hrúga á mig hlýjum flíkum í kuldaveðrinu sem er úti núna – kósý peysa undir flottan jakka eða vesti/poncho yfir jakka og alltaf flottur trefill við. Hér eru nokkrar útfærslur sem ég er skotin í þessa stundina. Hér eru nokkur tips sem er hægt að hafa í huga áður en þið klæðið ykkur í nokkur hlý lög af fötum.

  • Blandið saman ólíkum litum sem passa saman. Ætli við íslensku stelpurnar séum ekki líklegastar til að henda okkur í grátt og svart til skiptis en að fara kannski í gula peysu innan undir svarta jakkann í staðin fyrir gráan getur breytt heilmiklu og hjálpað til við að lífga uppá dressið í skammdeginu.
  • Passið uppá hlutföllin. Ef þið eruð t.d. í stórri peysu, annarri hnepptri yfir farið svo í jakka og setjið á ykkur trefil þá kemur betur út að vera í þykkum sokkabuxum við eða þröngum einföldum buxum til að virðast ekki vera of dúðaðar. Það er alltaf hægt að smella sér þá í aðrar sokkabuxur undir hinar eða bara buxurnar – til að halda hlýjunni inni.
  • Blandið sumarflíkunum við haustflíkurnar. Að vera í gallajakka undir ullarjakka eða pelsi getur komið mjög vel út.
  • Fylgihlutir eru ómissandi! Húfur, vettlingar, treflar, skinnkragar og grifflur eru snillt í kuldanum. Fallegur loðkragi úr Geysi fyrir veturinn er á óskalistanum hjá mér:)

EH

Lærðu að gera fasta fiskifléttu

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Hafdís

    24. October 2012

    Fallegur loðkragi helst frá Geysi er einmitt líka á óskalistanum mínu fyrir veturinn. Veistu hvort það sé hægt að panta þá eitthvers staðar á netinu? Eða veistu um síður sem selja svipaða kraga á netinu?

    • Reykjavík Fashion Journal

      24. October 2012

      ohh… því miður þá veit ég ekki hvort þau séu með netverslun en það gæti vel verið að þau gætu sent þér kannski í póstkröfu myndi bara prófa að senda þeim línu á facebook:) https://www.facebook.com/pages/Geysir/138860732810963 – annars hef ég séð svipaða bara á eBay en þeir eru bara svo fallegir, mjúkir og ómótstæðlegir hjá Geysi:):)

      • Hafdís

        25. October 2012

        Já hef ekki rekist á þá flottari en akkurat hjá þeim :) Takk kærlega fyrir.