fbpx

Þykkari Augnhár með Eyeliner:)

Blog

Ákvað að bæta aðeins við makeup rútínuna mína í morgun – fannst ég þurfa smá meiri fegurð á þessum erfiða mánudagsmorgni:) Ég ákvað að þykkari augnhár myndu gera galdurinn en þar sem ég var ekki með þykkingamaskara í buddunnu minni notaði ég eyeliner. Ég setti örmjóa línu alveg uppvið augnhárin ég passaði að hafa hana alveg jafn þykka alla leið og ekkert bil á milli augnháranna og línunnar. Ég notaði svartan blautan eyeliner – Master Precise Liquid Eyeliner – frá Maybelline. Hann er ný útgáfa af eyelinernum sem var í laginu eins og bleikur penni, hann er nú með mun mjórri oddi og gefur ennþá meiri og betri nákvæmni.

Af því ég var bara með lítinn handspegil þá lagði ég hann bara á skrifborðið og horfði niður í hann á meðan ég dró smám saman línuna. Passið bara að reyna að hafa línuna eins mjóa og þið getið því þá er auðveldara að bæta við hana ef eitthvað smá fer útfyrir án þess að línan verði of þykk:)

Bara með eyeliner hægra megin - munurinn alveg greinilegur;)


Voila! Þykkari augnhár á no time:)

EH

Lakkalakk Lookbook jól&áramót

Skrifa Innlegg