Þó að ég haldi nú ekki uppá Þakkargjörðardag Ameríkana eða viti afhverju þeir halda uppá hann – þá er maturinn góður! Í hádeginu í vinnunni var kalkúnn og meðí og í eftirrétt gerði ég dýrindis súkkulaðiköku á þremur hæðum – ætlaði að gera eina 6 hæða en gerði svo tvær önnur þeirra rataði svo inná borð í vinnunni hjá kærastanum við góðar undirtektir:)
Ég er ennþá svo södd að ég þarf ekki að borða næstu daga held ég! En þetta var góð æfing fyrir jólin;)
Sótti svo þessa gersemi í póstinn í dag sem fullkomnaði alveg daginn minn:)
EH
Skrifa Innlegg