Ég man fyrst til þess að hafa heyrt af þessu merki þegar keppendur í einhverri seríunni af America’s Next Topmodel gerðu myndatöku með þeim. Svo ekkert fyrr en ég lærði förðun þar sem kennararnir gátu ekki hætt að tala um Photo Finish Primerinn frá þeim – sem er snilld;)
Merkið kom fyrst á markað árið 1996. Stofnendur þess, bræðurnir Dean og Davis Factor, eiga sterk tengsl í förðunarheiminn en afa þeirra er eiginlega goðsögn í þessum heimi – þið gætuð kannast við hann, Max Factor;) Merkið leggur áherslu á að framleiða vörur sem endast vel og lengi og gefa gallalaust útlit. Meðal stjarnanna sem eru þekktar fyrir að nota vörur frá merkinu eru Drew Barrymore og Charlize Theron. Árið 2010 var það hins vegar fyrirtækið Estée Lauder sem keypti merkið þó svo bræðurnir stjórni því enn að hluta til.
Á morgun fæ ég að sjá og vita meira um vöruúrvalið sem verður hér á landi og hvar vörurnar munu fást. Ég er orðin svolítið spennt, það er alltaf gaman að fá nýtt merki á markaðinn!
EH
Skrifa Innlegg