Það er nú meira hvað er búið að vera mikil spenna yfir einum brúðarkjól;) En hér getið þið séð brúðarkjólinn hennar Jessicu Biel.Nammibleiki kjóllinn var hannaður af Giambattista Valli sem er líklega einn af hennar uppáhalds hönnuðum því hún hefur sést í ófáum kjólum frá hönnuðinum. Jakkafötin hannaði svo Justin með hjálp frá snillingnum Tom Ford.
Hér eru fleiri myndir af Jessicu í hönnun frá Giambattista Valli – þessi efsti finnst mér alveg stórkostlegur!Ein af fallegustu konum í Hollywood það verður bara að segjast og hönnunin fer henni ótrúlega vel að mínu mati. Ég veit samt ekki með litinn á brúðarkjólnum hennar. Svo það verður gaman að sjá mynd af henni standandi í kjólnum því svona sitjandi lítur hún eiginlega út eins og sykurpúði en ofboðslega fallegur sykurpúði:)
EH
Skrifa Innlegg