Síðan mín átti eins árs afmæli núna fyr í júlí – ég fylgist greinilega alls ekki með því hvaða dagar eru svo það fór alveg framhjá mér:) En að því tilefni langaði mig að gera eitthvað nýtt á síðunni svo ég tók mig til og safnaði saman öllum dress myndunum mínum á eina undirsíðu sem þið sjáið hér fyrir ofan undir “dress” þar er að finna allar dressmyndirnar mínar frá upphafi í tímaröð. Ég vona að þið hafið jafn gaman af því og ég að skoða þær aftur – líka skemmtilegt að sjá myndgæðin þróast.Á þessu eina ári hafa fullt af skemmtilegum hlutum gerst en það sem mér finnst samt skemmtilegast er hvað lesturinn ykkar hefur aukist, það er án efa ekkert skemmtilegra en þegar maður sér að fólk hefur gaman að því að lesa um það sem mér finnst gaman að skrifa um:)
Svo er fullt nýtt og skemmtilegt framundan bæði hjá blogginu og hjá mér og ég get eiginlega ekki beðið eftir því að segja ykkur betur frá því en þið fáið að komast að því eftir bara tæpar 2 vikur….!
Takk fyrir fyrsta árið mitt ég hefði ekki getað óskað mér betra árs***
EH
Skrifa Innlegg