Ég er búin að bíða svolítið óþreyjufull eftir því að myndir frá sumarlínu Olsen systranna, The Row, kæmu á netið. Eftir að hafa séð myndirnar þá skil ég biðina. Myndirnar eru nefninlega ekkert alltof spes en það er líklega set upinu hjá þeim að kenna – ég er ekki alveg að skilja þetta því ég hefði haldið að flestir myndu vilja eiga góðar myndir frá sýningunni sinni. Sumar voru hreyfðar og flestar sýndu ekki flíkurnar í heild sinni. En hér er það sem ég valdi úr…
Fötin eru alveg í takt við það sem við höfum séð áður frá systrunum. Stílhrein og elegant í smekklegum litum. Engin munstur og engar litasamsetningar. Ég er ekki alveg búin að ákveða fyrir sjálfa mig hvað mér finnst – Elizabeth & James hentar mínum stíl kannski örlítið betur. En ég er þó að fíla rykfrakkann sem er efstur í tætlur – ég þarf að næla mér í einn svona:)
EH
Skrifa Innlegg