Mér fannst nú ansi skemmtilegt að reka augun í kjól þegar ég var að skoða myndirnar úr línunni frá Paul Smith fyrir næsta sumar sem er svona hrikalega líkur kjól úr Monki sem ég fékk mér í Kaupmannahöfn í sumar. Minn er vinstra megin og Pauls er hægra megin. Ekki slæmt að eiga svona smá forskot á næsta sumar inní skáp. Ég spóka mig niður Laugaveginn með bumba litla næsta sumar í þessum;)
EH
Skrifa Innlegg