Í gær var það Oroblu í dag er það Miss Oroblu.
Miss Oroblu er lína innan vörumerkisins sem er tiltölulega ný í sölu hér á landi. Línan er hugsuð fyrir aðeins yngri markhóp en það eru oft bara ótrúlega flottar sokkabuxur í línunni sem ég bara verð að eignast!
Stundum get ég samt alveg fussað yfir stíliseringunni en sokkabuxurnar þær eru bjútifúl:) – Sumar eru reyndar til í öðrum litum en hér á myndinni en flestar eru þó til í svörtu – við getum stundum verið svo svört þjóð;)
Ég hvet ykkur til að kíkja á nýju línuna – þetta eru alls ekki allar bara svona nokkrar uppáhalds. Röndóttu Línu Langsokk sokkabuxurnar eru núna í miklu uppáhaldi og vekja alltaf athygli hvert sem ég kem. Pakkningarnar eru bleikar og svartar og í laginu eins og lítill kassi ekki þessar hefðbundnu sokkabuxnapakkningar.
Þið getið smellt á borðann hér fyrir neðan ef þið viljið skiða meira frá Oroblu.
EH
Skrifa Innlegg