Það er nú ekki hægt að segja að litir hafi einkennt nýjustu línuna frá Maison Martin Margiela en tískuhúsið er næsti samstarfsaðili H&M – ætli við fáum ekki vonandi að fara að sjá eitthvað meira frá því.
Mér fannst þessi lína ferkar skrítin ef ég á að vera alveg hreinskilin, ég skildi bara alls ekki conceptið – mér fannst flíkurnar sumar hverjar of stórar svo þær misstu algjörlega lögun sína. Eins og kjóllinn á næst neðstu myndinni sem ég myndi bara týnast í – og ég er nánast á stærð við fíl í augnablikinu! Það vantaði bara alla spennu í þessa línu það vantaði allt VÁ – því miður vakti þetta ekki mikla hrifningu hjá mér.
En dæmið endilega fyrir ykkur sjálfar…..Ekki minn tebolli og ég vona að H&M línan verði eitthvað öðruvísi.
EH
Skrifa Innlegg