Þið hafið kannski undrast um mig síðustu daga – allt í einu heyrðist ekkert frá ofvirka bloggaranum. Á miðvikudaginn var ég lögð inná spítala með nýrnasteina. Ófrískar konur eru mun líklegri til að nýrnasteina en aðrir þar sem þvagfærakerfið okkar er viðkvæmt fyrir útaf ýmsum hormónabreytingum. Þetta er án efa eitt það versta sem hefur komið fyrir mig en ég var svo ótrúlega þakklát yndislegu starfsfólki á kvennadeild Landspítalans fyrir að hugsa svona vel um mig og bumbubúann. Ég er líka ótrúlega þakklát öllum sem vissu hvað var í gangi fyrir batakveðjurnar og hlýju straumana – alveg ómissandi. Fyrir ykkur sem vonandi söknuðuð mín þá er nóg skemmtilegt planað framundan á reykjavikfashionjournal – meðal annars ný sýnikennsla sem kemur inn á morgun:)
EH
Skrifa Innlegg