Snillingurinn vinkona mín hún Íris Björk á flottasta myndaþáttinn í nýútkomnu Nordic Style Magazine – það finnst mér alla vega:)
Finnst ykkur þær ekki æðislegar! Sjáið restina af myndunum á blogginu hennar Írisar – HÉR
Ljósmyndari: Íris Björk
Stílisti: Sunna Þorsteins
Hár og Förðun: Margrét Magnúsdóttir
Fyrirsæta: Britt Brockhurst @ Elite London
Aðstoðarmaður: Viktor Breki
Mér finnst svo ótrúlega gaman að fylgjast með henni Írisi, hún er nefninlega alltaf að prófa sig áfram í einhverju sniðugu og nýju. Þessar myndir tók hún t.d. í garðinum sínum, hún setti bara upp hvítan bakgrunn;) Hún er í miklu uppáhaldi hjá mér og ég er svo hrifin af öllu sem hún gerir. Hún er búsett í London núna og er að læra ljósmyndun í London College of Fashion – öfund!
Þessa stundina finnst mér samt frekar erfitt að það sé haf á milli okkar því ég þarf á henni að halda í stóru verkefni sem ég er að vinna í!
EH
Skrifa Innlegg